|
Útbreiðsla skyndihjálpar hefur verið eitt af meginverkefnum Rauða kross Íslands í um 80 ár. Allt frá stofnun hreyfingarinnar í Genf árið 1863 hefur verið lögð áhersla á skyndihjálp hjá landsfélögum Rauða krossins um allan heim. Rauði kross Íslands á gott samstarfi við landsfélög hreyfingarinnar víða um heim á þessu sviði.
Í nóvember 2001 undirrituðu Rauða kross Íslands og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið samkomulag um hlutverk og ábyrgð félagsins í skyndihjálparmálum. Markmiðið með samkomulaginu er að efla og breiða út skyndihjálparþekkingu hér á landi.
Rauði kross Íslands býður upp á vönduð og hagnýt námskeið í skyndihjálp. sem sniðin eru að þörfum hópa, s.s. almennings, fagaðila og fyrirtækjastarfsmanna, bæði hvað varðar lengd og efnistök.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna rétt viðbrögð í neyð og einfaldar aðferðir skyndihjálpar. Allt fræðsluefnið er gefið út af Rauða krossi Íslands.
|
 |
| Rafal leiðbeinandi sýnir réttu handtökin. |
Rauða kross deildirnar á Vestfjörðum buðu Pólverjum sem búa á svæðinu að taka þátt í námskeiði í almennri skyndihjálp sem fram fór á móðurmálinu.
Það var Rafal Marcin Figlarski leiðbeinandi í skyndihjálp og sjúkraflutningamaður sem sá um kennsluna en hún fór fram bæði á Ísafirði og Flateyri.
Haldin voru fjögur námskeið og var góð mæting og almenn ánægja með að fá fræðslu á pólsku um mikilvægi þess að þekkja réttu viðbrögðin þegar á reynir.
Lesa meira...
|
Fleiri fréttir og greinar
|
|