Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Tombólukrakkar hjálpa börnum í útlöndum

tomboluborn_bio_07_IMG_4291.jpg
Laugarásbíó hefur undanfarin ár boðið tombólubörnum á höfuðborgarsvæðinu á bíósýningu á degi sjálfboðaliðans 5. desember. Tombólubörn eru mikilvægir sjálfboðaliðar Rauða krossins.

Tombólubörn á Íslandi leggja sitt af mörkum við hjálparstarf með því að gefa Rauða krossinum það fé sem safnast þegar þau halda tombólur.

Árlega halda um fjögur hundruð börn tombólur og safna allt að milljón krónum sem varið er til að aðstoða börn víðsvegar í heiminum sem eiga um sárt að binda.

Árin, 2009, 2008 og 2007 var peningunum varið til að aðstoða börn Malaví sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Árið 2006 var peningunum varið til styrktar börnum í Sierra Leone sem eiga um sárt að binda vegna stríðsátaka, árið 2005 var peningunum ráðstafað til að aðstoða börn sem eiga um sárt að binda í kjölfar flóðbylgjunnar í Asíu og árið 2004 voru heyrnardauf börn í Palestínu aðstoðuð.

Rauði krossinn leggur metnað sinn í að útskýra fyrir börnunum hvernig tombólutekjunum er varið og sendir þeim í því skyni bréf sem segir frá  verkefninu sem valið er og viðurkenningarskjal sem þakklætisvott.

Tombólubörnum stendur til boða að fá mynd af sér birta í Morgunblaðinu. Til þess þurfa þau að koma með peningana á skrifstofu Rauða krossins Efstaleiti 9. eða til deilda um land allt, og fá kvittun sem þau sýna hjá Morgunblaðinu. Einnig er hægt að leggja inn á reikning hjálparsjóðs, 1151-26-12, kt. 530269-2649 og senda skýringar á netfangið central@redcross.is með mynd sem við komum til Morgunblaðsins.

Sjá myndir af tombólubörnum
.