Skagastrandardeild
Stjórn

Skagastrandardeild

Vallarbraut 4
545 Skagaströnd
Kennitala 640593-2539
Styrkja starfið

Skagastrandardeild er yngsta deildin innan Rauða kross Íslands, stofnuð árið 1993. Fyrsti formaður var Pétur Eggertsson.

Starfssvæði deildarinnar nær frá Laxá í suðri að sýslumörkum Austur Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu út á Skaga.

Deildin á húsnæði að Vallarbraut 4. Á efri hæð er fundaraðstaða en niðri er aðstaða fyrir sjúkrabílinn. Þar fer einnig fram móttaka á notuðum fatnaði á mánudögum eða eftir nánara samkomulagi.

Auk hefðbundinna verkefna tengdum skyndihjálparfræðslu og neyðarvörnum hefur deildin haldið úti heimsóknaþjónustu um árabil við góðan orðstír.

Sá skemmtilegi siður hefur skapast þann 1. maí ár hvert að deildin stendur fyrir fatamarkaði og kaffisölu þar sem heimamenn koma saman og gera sér glaðan dag og styrkja með því starf deildarinnar.