Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Að ná í sjúkrabíl
Ef boða þarf sjúkrabíl á að hringja í Neyðarlínuna í síma 112 (einn, einn, tveir).

Gjald fyrir sjúkraflutning
Einstaklingur, sem fluttur er með sjúkrabíl og nýtur sjúkratrygginga Tryggingastofnunar ríkisins, greiðir alltaf fast gjald óháð vegalengd. Það gjald er nú 5.000- kr. Þó svo að einstaklingur sé fluttur oftar innan 24 tíma er aðeins greidd sú fjárhæð. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri greiða þó lægra gjald eða 2.500 kr.- samkvæmt ákvörðun Rauða krossins um að niðurgreiða sjúkraflutninga þeirra um 50%. Örorkulífeyrisþegar, sem eru með 60% örorku eða meira, fá sömuleiðis 50% niðurgreiðslu en þeir þurfa þó að sækja um það sérstaklega til Rauða krossins í fyrsta skipti og framvísa örorkukorti frá TR.

Sjúkrastofnanir greiða ýmist fast gjald eða kílómetragjald. kr. 195.- pr. km.

Lög og reglugerð um gjaldskrá
Gjald fyrir sjúkraflutning einstaklings er ákveðið í reglugerð sem heilbrigðisráðuneytið setur á grundvelli laga nr. 117/1993.  Í núgildandi reglugerð nr. 1090/2006 um hlutdeild sjúkratryggðra í  kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu er kveðið á um hver fjárhæð gjaldsins fyrir sjúkraflutning skuli vera en hún er nú 4.700,- kr.

Nánari upplýsingar um sjúkratryggingar má finna á vefslóð Tryggingastofnunar ríkisins http://www.tr.is.

Skráning sjúkraflutninga
Skráning sjúkraflutninga á landsvísu er samræmd hjá Neyðarlínunni samkvæmt fyrirmælum landlæknis.  Neyðarlínan skráir í dag alla flutninga á höfuðborgarsvæðinu og sendir upplýsingar á rafrænu formi til Rauða kross Íslands til þess að unnt sé að innheimta reikninga vegna sjúkraflutninga. Upplýsingarnar, sem starfsfólk Rauða krossins fær, eru um hver sé fluttur, hvaðan og hvert, hver eigi að greiða og heimilisfang viðkomandi. Aðrar persónuupplýsingar um sjúkling fylgja ekki.

Rekstur sjúkrabíla
Margar félagsdeildir Rauða krossins víða um land komu að sjúkraflutningum um árabil, allt frá upphafi sjúkrabílarekstrar á Íslandi. Fyrir um áratug færðist reksturinn hins vegar frá deildunum yfir í sérstaka rekstrareiningu sem heitir Sjúkrabílasjóður Rauða kross Íslands. Samkvæmt samningi heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins annast Rauði krossinn útvegun, innkaup og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga um allt land fyrir ríkið.  Samningurinn var endurnýjaður í ársbyrjun 2006 og gildir til ársloka 2010.

Sjúkrabílar í eigu Rauða kross Íslands eru alls 77. 
Kostnaðurinn við reksturinn var fjármagnaður með eftirtöldum hætti á árinu 2006:
Rauði kross Íslands lagði fram 37 milljónir kr. (17%), ríkið lagði fram 92 milljónir kr. (43%) og greiðslur frá einstaklingum og stofnunum vegna sjúkraflutninga námu um 86 milljónum kr. (40%). Samtals eru þetta um 215 milljónir kr.