Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Sálrænn stuðningur III

Námskeiðið er eingöngu ætlað fjöldahjálparstjórum og stuðningsaðilum Rauða kross deilda í fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Sérhæfðir leiðbeinendur kenna.

Lengd

13 klukkustundir (20 kennslustundir)

Markmið Að þátttakendur kynnist gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Að auka þekkingu og færni þátttakenda það mikið að líta megi á þá sem sérhæfða starfskrafta í sálrænum stuðningi. Þátttakendur eiga að geta starfað nokkuð sjálfstætt og eins í hóp. Þeir eiga að geta grófgreint hversu mikinn stuðning þarf og hvar og hvernig sé best að veita hann. Eins eiga þeir að geta stjórnað viðrun fyrir samstarfsfólkið.
Viðfangsefni

Áhrif alvarlegra atvika
Viðbrögð við áföllum
Einkenni
Áfallastreita/áfallaröskun
Skipulag neyðarvarna og áfallahjálp
Áfallahjálp – skipulag Alþjóða Rauða krossins
Sjálfshjálp
Stuðningur við hjálparlið
Viðrun
Verklegar æfingar

Fræðsluefni

Sálræn skyndihjálp. Þegar lífið er erfitt. Sálrænn stuðningur – viðbrögð og bjargir Útgefandi fræðsluefnis: Rauði kross Íslands. Greinar um streitu og streituviðbrögð. Efni frá Alþjóðasambandi Rauða krossins.

Inntökuskilyrði

Þátttakendur séu 20 ára eða eldri.

Námsmat Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Hvorki skriflegt né verklegt próf.
Viðurkenning Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossi Íslands og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.
banner_1717.gif
Ef bara - hægri
skyndihj_kanntuskyndihj.jpg
Hjálpfús - hægri borði