Sálrænn stuðningur II
Námskeiðið er fyrir þá sem hafa farið á styttri námskeið (kynningu eða 4 tíma) og vilja dýpka skilning sinn, rifja upp eða öðlast frekari færni og þekkingu. Námskeiðið er einkum gagnlegt fyrir starfsmannahópa, starfsfólk með mannaforráð og sjálfboðaliða Rauða kross Íslands.
| Lengd |
8 klukkustundir (13 kennslustundir)
|
| Markmið |
Að þátttakendur kynnist gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. |
| Viðfangsefni |
Hvað er sálrænn stuðningur?
Áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn
Sálræn skyndihjálp
Sjálfsrýni – hvað get ég gert?
Tjáning og hlustun
Stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks
Munur á alvarlegum atvikum og glímunni við lífið
Mismunandi tegundir áfalla
Áhrif streitu á einstaklinginn
Sorg og sorgarferlið
Áhrif áfalla á börn
Verklegar æfingar
|
| Fræðsluefni |
Sálræn skyndihjálp. Þegar lífið er erfitt. Sálrænn stuðningur – viðbrögð og bjargir Útgefandi fræðsluefnis: Rauði kross Íslands. Greinar um streitu og streituviðbrögð. Efni frá Alþjóðasambandi Rauða krossins.
|
| Inntökuskilyrði |
Þátttakendur séu 20 ára eða eldri.
|
| Námsmat |
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Hvorki skriflegt né verklegt próf. |
| Viðurkenning |
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossi Íslands og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár. |
|
|