Kvennadeild
Verkefni kvennadeildar

Verkefni kvennadeildar

Rekstur sjúklingabókasafna og hljóðbókaþjónusta
Kvennadeildin rekur bókasafnsþjónustu á stóru sjúkrahúsunum tveimur. Árið 1967 hófst bókasafnsþjónusta á Landspítala Hringbraut og árið 1968 á Landspítala Fossvogi. Frá árinu 1976 hefur þessi þjónusta líka verið á sjúkrahóteli RKÍ á Rauðarárstíg.

Farið er á hverja deild á sjúkrahúsunum einu sinni í viku og sjúklingum lánaðar bækur.

Frá árinu 1975 hefur hljóðbókaþjónusta verið starfrækt á Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi í samvinnu við Blindrabókasafn Íslands og hefur sú þjónusta stóraukist á undanförnum árum.

Rekstur sölubúða
Fyrsta sölubúðin var opnuð á Landakoti árið 1967 og var það nýmæli hér á landi. 

Í dag  rekur Kvennadeildin tvær sölubúðir, á Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut og í Fossvogi.  Þar rekum við einnig sjálfsala, ásamt rekstri sjálfsala á Landakoti og geðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. 


Föndurstarfsemi
Föndur hefur verið stundað af félagskonum síðan árið 1975. Hópur handlaginna kvenna hittist vikulega og vinnur að því að búa til ýmsa fallega muni sem síðan eru seldir á árlegum föndur- og kökubasar deildarinnar.

Föndurkonur velja sér verðug verkefni sem þær vilja styrkja með afrakstri basarsins.

Neyðarvarnir
Kvennadeildarkonur taka virkan þátt í neyðarvörnum, og eru alltaf tilbúnar til að skrá og hlúa að fólki, ef vá ber að höndum.

Vinadeildasamstarf
Kvennadeildakonur hafa tekið þátt í vinadeildasamstarfi Reykjavíkurdeildar í Paldiski í Eistlandi sem hófst árið 2002, lofar sú samvinna góðu.

Gjafir
Rekstur sölubúðanna er helsta tekjulind deildarinnar. Við verjum hagnaðinum til kaupa á dýrum og vönduðum lækninga- og rannsóknatækjum sem gefin eru sjúkrastofnunum borgarinnar.

Einnig styður deildin líknarfélög og einstaklinga með tækjakaupum og fjárframlögum. Árlega nema gjafir Kvennadeildarinnar 4 – 6 milljónum króna.


Félagsstarfið

Félagsstarf Kvennadeildarinnar er með miklum blóma.

Árlega eru haldnir fjölmargir félagsfundir, bæði fræðslu- og skemmtifundir. Einnig fara Kvennadeildarkonur árlega í sumarferð.