Konukot
English
Lithunia
Polski
Russkii
Thysk
Thai
Málþing um stöðu heimilislausra
Fræðsluefni
Umfjöllun

Um Konukot

Konukot, næturathvarf fyrir heimilislausar konur - samstarfsverkefni Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og Reykavíkurborgar.

Hér má sjá myndband sem gert var um starfsemi Konukots á vordögum 2010. Höfundur þess er Árni Þór Theodórsson kvikmyndagerðarmaður.

Konukot er ætlað konum sem eiga hvergi höfði sínu að halla og þurfa stað til að sofa á. Flestar þeirra stríða við vandamál tengd neyslu áfengis og/eða fíkniefna. Athvarfið er opið frá kl. 17:00 til  kl.11:30  daginn eftir og ætlast er til þess að konur komi í hús fyrir kl. 01 á nóttunni. Boðið er upp á léttan kvöldverð og morgunverð. Konur geta þvegið af sér og farið í bað, auk þess sem þær geta fengið fatnað, sem Fataflokkun Rauða krossins útvegar, ef á þarf að halda. Öll neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð í athvarfinu, en konum er ekki meinaður aðgangur þó þær séu undir áhrifum þegar þær mæta á staðinn.
 
Í Konukoti er reynt að skapa þeim sem þar dvelja þægilegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem grundvallarmarkmið Rauða krossins eru höfð að leiðarljósi. Starfsmenn Konukots geta aðstoðað við að hafa samband við lækni,  meðferðaraðila, Geðdeild eða sambærilega aðila ef gestur óskar eftir því. Einu sinni í viku mæta félagsráðgjafar frá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða  í athvarfið og bjóða aðstoð þeim gestum sem hana vilja þiggja.
 
Reykjavíkurdeild Rauða krossins setti Konukot á fót og opnaði formlega þann 10. desember 2004. Forsaga Konukots er sú að gerðar höfðu verið þarfagreiningar og rannsóknir sem leiddu í ljós að fjöldi heimilislausra kvenna væru á vergangi í Reykjavík og ákvað stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða krossins á fundi vorið 2004 eftir tveggja ára undirbúningstímabil og viðræður við marga aðra aðila um samstarf að opna athvarfið hið fyrsta. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar útvegaði húsnæðið að Eskihlíð 4 um haustið 2004 og var það samkomulag milli borgarinnar og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins að um yrði að ræða tveggja ára tilraunaverkefni og aðkoma borgarinnar eða yfirtaka yrði skoðuð að þeim tíma loknum.
 
Þann 28. september 2006 gerðu Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands með sér samning þess efnis að Reykjavíkurdeild Rauða krossins sér áfram um rekstur Konukots en fær rekstrarfé frá Velferðarsviði borgarinnar.