Markmið
Markmiðið með starfrækslu Fjölskyldumiðstöðvarinnar er að aðstoða einstaklinga og styðja foreldra sem eiga börn í vanda, s.s. vegna vímuefnaneyslu, samskiptaerfiðleika og hegðunar.
Hugmyndafræði
Hugmyndafræði Fjölskyldumiðstöðvar er í anda forvarna og leggur fjölskyldum lið við að leysa vanda sem fyrst, meðan þær búa yfir styrk og von til að gera það af eigin rammleik, svo að koma megi í veg fyrir að mál þróist á verri veg.
Þjónusta
Starfsemi Fjölskyldumiðstöðvarinnar er að veita fjölskyldum ráðgjöf og meðferð. Einnig er í boð hópastarf, annars vegar fyrir börn og unglinga og einnig fyrir foreldra, sem miðar að því meðal annars að styrkja þau í foreldrahlutverkinu.

Samvinna er á milli Fjölskyldumiðstöðvar, Þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar, ÍTR og grunnskóla sem gerir hópastarfið markvissara og líklegra til að skila betri árangri.
Hvernig nýti ég mér þjónustu Fjölskyldumiðstöðvar?
Foreldrar og einstaklingar hafa samband símleiðis og óska eftir viðtali/aðstoð. Þjónusta Fjölskyldumiðstöðvar er opin öllum. Síminn er 511 1599. Hægt er að panta viðtal mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 09-18; fimmtudaga kl. 09-17 og föstudaga kl. 09-12.
Ekki er gert ráð fyrir að unglingar leiti beint til miðstöðvarinnar en geri þeir það verður reynt að fá þá til þess að koma í viðtal ásamt foreldrum sínum.
Fjölskyldumiðstöðin er rekin af Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands með aðkomu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.