Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Konukot

Konukot

Konukot er næturathvarf fyrir heimilislausar konur - samstarfsverkefni Reykjavíkurdeildar Rauða krossins og Reykavíkurborgar.
 
Konukot er ætlað konum sem eiga hvergi höfði sínu að halla og þurfa stað til að sofa á. Flestar þeirra eru í neyslu og/eða eiga við geðræn vandamál að stríða.

Athvarfið er opið frá kl. 17  til kl. 12 á daginn eftir og ætlast er til þess að konur komi í hús fyrir kl. 01 á nóttunni. Boðið er upp á léttan kvöldverð og morgunverð. Konur geta þvegið af sér og farið í bað, auk þess sem þær geta fengið fatnað, sem Fataflokkunarstöð Rauða krossins útvegar, ef á þarf að halda. Öll neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð í húsinu.
 
Í Konukoti er reynt að skapa þeim sem þar dvelja þægilegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem grundvallarmarkmið Rauða krossins eru höfð að leiðarljósi.
 
Reykjavíkurdeild Rauða krossins setti Konukot á fót og opnaði formlega þann 10. desember 2004. Forsaga heimilisins er sú að gerðar höfðu verið þarfagreiningar og rannsóknir sem leiddu í ljós að fjöldi heimilislausra kvenna væru á vergangi í Reykjavík og ákvað stjórn Reykjavíkurdeildar á fundi vorið 2004 eftir tveggja ára undirbúningstímabil og viðræður við marga aðra aðila um samstarf að opna athvarfið hið fyrsta. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar útvegaði húsnæðið að Eskihlíð 4 um haustið 2004 og var það samkomulag milli borgarinnar og Reykjavíkurdeildar að um yrði að ræða tveggja ára tilraunaverkefni og aðkoma borgarinnar eða yfirtaka yrði skoðuð að þeim tíma loknum.
 
Þann 28. september 2006 gerðu Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurdeild með sér samning þess efnis að deildin sér áfram um rekstur Konukots en fær rekstrarfé frá Velferðarsviði borgarinnar. Samningurinn gildir frá 1. desember 2006 - 31. desember 2007.