Hælisleitendur og flóttamenn
Aðkoma Rauða kross Íslands
Fjöldi flóttamanna og hælisleitenda
Hver er hælisleitandi?
Tölulegar upplýsingar
Hælisleitendur og vegabréf
Greinar og skýrslur

Hælisleitendur og flóttamenn

Rauði krossinn sinnir málefnum hælisleitenda í samvinnu við stjórnvöld og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Alls starfa 36 sjálfboðaliðar Rauða krossins í verkefnum fyrir hælisleitendur

Styrkja starfið Haelisleitendur_og_flottamenn.jpg

Hópur heimsóknavina hjá Hafnarfjarðardeild heimsækir hælisleitendur einu sinni í viku.

Hælisleitendur búa við mikla félagslega einangrun og eru undir miklu andlegu álagi. Hópurinn hefur það að markmiði að rjúfa þessa einangrun og létta fólki lífið og biðina á meðan á málsmeðferð stendur. Þrír til fjórir heimsóknarvinir heimsækja hælisleitendur hverju sinni.  Einnig sér hópur sjálfboðaliða um félagsstarf fyrir hælisleitendur.

Lögfræðinemar og lögfræðingar starfa sem réttindagæslufulltrúar Rauða krossins með hælisleitendum á fyrstu stigum málsmeðferðar þegar hælisleitendur eiga ekki rétt á lögmannsaðstoð á kostnað ríkisins. Réttindagæslufulltrúi fylgir hverju máli frá upphafi til enda. Haldin eru sérstök undirbúningsnámskeið fyrir réttindagæslufulltrúa sem valdir eru til þátttöku í verkefninu að undangegnum viðtölum.