Vin
Hér erum við
Saga Vinjar
Reglur
Ársskýrsla 2011
Starfsmenn
Samstarfsaðilar
Skákfélagið
Ferðafélagið
Dagskrá
Fréttir
Við erum á Facebook

Þér standa dyr opnar

Vin

Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir, rekið af Rauða krossi Íslands.

Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr endurinnlögnum á geðdeildir, efla þekkingu okkar og annara á málefnum geðsjúkra og skapa umhverfi þar sem gagnkvæm virðing og traust ríkir og tekið er tillit til hvers og eins.

Þeir sem sækja Vin koma á eigin forsendum og eru kallaðir gestir. Þeir taka virkan þátt í starfseminni sem er margvísleg.

Unnið er samkvæmt grundvallarmarkmiðum Rauða krossins/Rauða hálfmánans með áherslu á mannúð og virðingu. Horft er á einstaklinginn og getu hans til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar. Veittur er stuðningur og ráðgjöf með áherslu á tengsl og samspil.

Vin er staðsett að Hverfisgötu 47, sími 561 2612 og 561 2721.