Fataverkefni
Fatasöfnun
Fataúthlutun
Verslanir
Föt sem framlag

Fataverkefni

Rauði krossinn tekur við notuðum fatnaði og annarri textílvöru sem nýtist til hjálparstarfs. Rauðakrossbúðirnar gegna mikilvægu hlutverki í fjáröflun félagsins. Úthlutað er fatnaði til 2000 einstaklinga árlega

Styrkja starfið fataverkefni.jpg

Fatasöfnun Rauða krossins er orðin eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefnið fyrir Hjálparsjóð Rauða kross Íslands. Afrakstur ársins 2010 var 60 milljónir króna sem greiddar voru í Hjálparsjóð, sem einkum er notaður til alþjóðlegs hjálparstarfs.

Rauðakrossbúðirnar gegna afar mikilvægu hlutverki í fjáröflun félagsins. Tíu ár eru liðin frá því fyrsta Rauðakrossbúðin var opnuð að Hverfisgötu í Reykjavík. Árið 2002 var búðin svo flutt að Laugavegi 12 þar sem hún er enn. Verslanirnar á höfuðborgarsvæðinu er nú fimm. Tvær eru á Laugaveginum, ein í Mjóddinni í Breiðholti, ein í Hafnarfirði og nýjasta viðbótin er Rauðakrossbúðin á Garðatorgi. Þá eru starfræktar Rauðakrossbúðir á Akureyri, Suðurnesjum, Borgarnesi, Grundarfirði, Eskifirði, Egilsstöðum, Stöðvarfirði og á Hornafirði.

Á höfuðborgarsvæðinu starfa um 200 sjálfboðaliðar á ári launalaust við söfnun, flokkun og sölu fatnaðarins. Þeir skiluðu á síðasta ári um 19.000 vinnustundum og reikna má með því að þetta framlag sjálfboðaliðanna sé ekki undir 30 milljóna króna virði. 

Þá úthlutaði Rauði krossinn fatnaði til 2.000 einstaklinga.