Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Geðheilsa

Athvörf fyrir fólk með geðraskanir

Rauði krossinn rekur eða kemur að rekstri átta athvarfa fyrir fólk með geðraskanir víða um landið. Ýmislegt er gert í athvörfunum, t.d. borðað saman, lesið, spilað, málað eða farið í gönguferðir.

Rauði krossinn vinnur á margvíslegan hátt að auknum skilningi á málefnum fólks með geðraskanir, t.d. með því að halda námskeið fyrir aðstandendur og standa að sjálfshjálparhópi.

Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir í Reykjavík. Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00 til 16:00, föstudaga kl. 10:00 - 16:00. Yfir vetrartímann er opið á miðvikudögum kl. 13:00 - 20:00 og sunnudögum frá kl. 14:00-17:00.

Vin er fyrir þá sem hafa útskrifast af geðdeild og finna ef til vill til einmanaleika, langar að hafa eitthvað fyrir stafni, sinna áhugamálum sínum eða bara komast í góðan félagsskap.

Svipuð starfsemi er í Laut á Akureyri, Læk í Hafnarfirði, Setrinu á Húsavík, Vesturafli á Ísafirði og í Dvöl, sem Kópavogsdeild Rauða krossins, Kópavogsbær og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi standa að.

Hafið samband til að fá nánari upplýsingar:

Vin, Hverfisgötu 47, sími 561-2612, netfang vin@redcross.is 

Dvöl, Reynihvammi 43, sími 554-1260, netfang dvol@redcross.is

Laut, Brekkugötu 34, Akureyri, sími 462-6632, netfang laut@simnet.is

Lækur, Hörðuvöllum 1, Hafnarfirði, simi 566 8600, netfang laekur@redcross.is

HVER, Kirkjubraut 1, Akranesi, sími 431 2040, netfang hver@akranes.is, http://hver.blogcentral.is

Kompan, Lyngási 12, Egilsstöðum, opið kl. 13-16, sími 471 1875, netfang kompuna@simnet.is

Setrið, Héðinsbraut 6, Húsavík, sími 464-1740. http://setrid.fjolskylduthjonusta.is/

Vesturafl, Ísafirði, sími 456 4406, bloggsíða http://vesturafl.bloggar.is/sida/42746/