Fatasöfnun
Deildir Rauða krossins um allt land safna notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Á höfuðborgarsvæðinu er Rauði krossinn í samstarfi við Sorpu um söfnun á fatnaði. Á öllum endurvinnslustöðum Sorpu er að finna söfnunrgáma Fatasöfnunar. Þeir eru hvítir og vandlega merktir Rauða krossinum Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:
- hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins
- hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi
- hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis
- hann er flokkaður og seldur í Rauða kross búðunum að Laugavegi 12, Laugavegi 116 og í Mjódd í Reykjavík og Strandgötu 24 Hafnarfirði.
Úthlutun Í Reykjavík fer fram að Laugavegi 116 á miðvikudögum kl 10 - 14, gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin.
Opnunartími verslana
Laugavegi 12 Reykjavík
Laugavegi 116 Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18
Mjódd Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18
Strandgötu 24 Hafnarfirði
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 12-18, lokað laugardaga
Úthlutunarreglur
Skilríki Allir þurfa að framvísa skilríkjum til að gera grein fyrir sér.
Skráning Skráð verður nafn og kennitala.
Fatnaður Hver einstaklingur getur fengið allt að tvo poka af fatnaði hverju sinni. Fatasöfnunin lætur í té pokana.
Hve oft Sérhver getur fengið úthlutað fjórum sinnum á ári. Að minnsta kosti tveir mánuðir þurfa að líða á milli úthlutana.
Komi upp sérstök tilvik sem krefjast úrlausnar umfram áðurtalda aðstoð skal leita til Rauða kross deildar í viðkomandi sveitarfélagi.
Mikilvæg tekjuöflun
Árið 2008 bárust 1100 tonn af fötum til Rauða krossins. Það sem ekki er nýtt beint til hjálparstarfa er selt. Um er að ræða mikilvæga tekjuöflun Rauða krossins sem skilar sér beint í alþjóðlega neyðaraðstoð.
Öll vefnaðavara kemur að notum, líka það sem er slitið eða illa farið. Það sem ekki nýtist sem fatnaður fer í endurvinnslu og skilar mikilvækum tekjum til Rauða krossins í leiðinn. Skór, gluggatjöld, rúmföt og handklæði eru vel þegin.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta fengið upplýsingar um opnunartíma og staðsetningu endurvinnslustöðva á heimasíðu Sorpu. Vinsamlegast látið fötin í plastpoka og lokið vel fyrir. Pokarnir eru settir í vel merkta hvíta gáma sem vel er hugsað um. Sjálfboðaliðar flokka fatnaðinn í Fatasöfnun Rauða krossins að Skútuvogi 1, Reykjavík. Sjálfboðaliðar annast einnig afgreiðslu í verlsunum Rauðakrossins.
Íbúar á landsbyggðinni geta haft samband við sína deild og spurst fyrir um söfnunarstað.
Föt sem framlag
Einstaklingar og hópar vinna ákaflega merkilegt hjálparstarf með því að vinna ungbarnaföt sem send eru til alþjóðlegrar neyðaraðstoðar. Fötin eru meðal annars gerð úr afgöngum og góðum notuðum efnum.
Í þróunarlöndum og á svæðum þar sem neyðarástand ríkir er víðast mikill skortur á barnafötum. Í fatasöfnunum berst minnst af barnafötum. Handavinnuverkefnið Föt sem framlag miðar að því að draga úr þessum skorti. Þörfin er brýn og allir geta lagt sitt af mörkum til að aðstoða þá sem þurfa á fötum að halda. Frá janúar til september 2009 voru sendir út 2.300 pakkar af ungbarnafatnaði.
Rauði kross Íslands lætur í té uppskriftir og snið af fötunum. Öll vinna við verkefnið er sjálfboðavinna. Rauði kross Íslands kemur fötunum á áfangastað.
Flutningafyrirtækin Eimskip, Landflutningar og Flytjandi veita fataverkefninu ómetanlega aðstoð.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu þá geturðu skráð þig hér á vefnum og fulltrúi Rauða krossins mun hafa samband.
Fatasöfnun Rauða krossins er staðsett að Skútuvogi 1, Reykjavík, sími 587 0900, netfang fataflokkun@redcross.is
|