Einstaklingar og hópar vinna ákaflega merkilegt hjálparstarf með því að vinna ungbarnaföt sem send eru til alþjóðlegrar neyðaraðstoðar. Fötin eru meðal annars gerð úr afgöngum og góðum notuðum efnum.
Í þróunarlöndum og á svæðum þar sem neyðarástand ríkir er víðast mikill skortur á barnafötum. Í fatasöfnunum berst minnst af barnafötum. Handavinnuverkefnið Föt sem framlag miðar að því að draga úr þessum skorti. Þörfin er brýn og allir geta lagt sitt af mörkum til að aðstoða þá sem þurfa á fötum að halda..
Rauði kross Íslands lætur í té uppskriftir og snið af fötunum. Öll vinna við verkefnið er sjálfboðavinna. Rauði kross Íslands kemur fötunum á áfangastað.
Ef þú hefur áhuga hafðu samband við deildina í síma 864 7004 eða netfangið alftanes@redcross.is
