Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  


 

hundurdvol.jpg
Handavinna er stór þáttur í starfinu í Dvöl. Þórður Ingþórsson sést hér leiðbeina einum gesta athvarfsins og tíkin Tinna er þá að sjálfsögðu ekki ýkja langt undan.

Gestum í athvarfinu Dvöl í Kópavogi líkar vel við tíkina Tinnu. Hundurinn er í eigu Þórðar Ingþórssonar forstöðumanns sem kom á óvart hve tímafrekt hundahald er. Greinin birtist í Morgunblaðinu 21.07.2010

„Hundar eru góðir fyrir geðheilsuna. Þetta er staðreynd sem bæði erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á og einnig er þetta eitthvað sem margir hafa sjálfir upplifað,“ segir Þórður Ingþórsson forstöðumaður Dvalar í Kópavogi, athvarfs sem Kópavogsdeild Rauða krossins og bæjaryfirvöld starfrækja í sameiningu.

Þórður kemur með hundinn sinn, tíkina Tinnu, til vinnu sinnar í Dvöl sérhvern dag. Tinnu og Dvalar-gestum kemur afar vel saman og eru gestirnir sammála um að nærvera hennar sé mjög gefandi á allan hátt.

Lesa meira...
 


Dvol_trollafoss_2010
Göngukonur fá sér samlokur eftir að hafa skoðað Tröllafoss.

Vaskur hópur gesta og starfsmanna úr Dvöl fór í göngu upp að Tröllafossi í Leirvogsdal á dögunum. Veðrið var gott, glampandi sól og hópurinn vel búinn. Þetta er mjög skemmtileg gönguleið og ekki erfið en gengið er eftir malarstíg nánast alla leið. Gangan tekur um einn og hálfan tíma í allt, fram og til baka. Fossinn var glæsilegur en til að komast að honum þarf að vaða yfir ána, svo gott er að hafa með sér töflur og lítið handklæði ef fólk hyggst fara yfir. Þegar búið var að skoða fossinn og vaða aftur yfir ána gæddu göngugarparnir sér á dýrindis samlokum og drykkjum og héldu síðan heim á leið.

Lesa meira...
 


Eldri fréttir

raudakrosshusidr_litill.jpg
raudakrossbudirnarjpg.jpg
banner_1717.gif