Sjúkraflutningar Rauða krossins
 |
|
Allir sjúkrabílar á Íslandi tilheyra Rauða krossinum, sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur. Margar deildir félagsins voru stofnaðar af frumkvöðlum sem vildu tryggja þjónustu sjúkrabíls í sínu sveitarfélagi. Nú eru bílarnir reknir með það í huga að um allt land séu ávalt til reiðu vel útbúnir bílar til sjúkraflutninga.
Á hverjum degi allt árið um kring flytja sjúkrabílar Rauða kross Íslands að jafnaði milli fjörtíu og fimmtíu sjúklinga. Á venjulegu ári fara bílarnir í milli 20 og 24 þúsund flutninga en heildarútköll eru um 32 þúsund.
Tæknivæddir sjúkraflutningar eru árangur tæplega 80 ára starfs Rauða krossins. Þegar félagið var stofnað 1924 var einn sjúkrabíll til á landinu, staðsettur í Reykjavík, og þeir sem ekki gátu farið með honum fóru á sjúkrahús annað hvort í burðargrind, með hesti eða þá alls ekki. Tveimur árum síðar var fyrsti sjúkrabíll Rauða kross Íslands keyptur til landsins, ítalskur Fiat með kraftmikla vél og góða aksturshæfileika í snjó.
Nú er Rauði kross Íslands með 77 sjúkrabíla á 40 stöðum á landinu. Samkvæmt samningi heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins annast Rauði krossinn útvegun, innkaup og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga um allt land fyrir ríkið. Samningurinn var endurnýjaður í ársbyrjun 2006 og gildir til ársloka 2010.
Síðan samningur við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um rekstur bílanna var undirritaður í árslok 1997 hefur meiri hluti bíla verið endurnýjaður, með það í huga að sameina öryggi og hagkvæmni í rekstri. Samkvæmt samningnum er greiðsluþátttaka sjúklinga í algjöru lágmarki og ráðuneytið lagði árið 2006 92 milljónir króna til sjúkraflutninganna en Rauði kross Íslands 37 milljónir.
Fyrirspurnir sendist Marinó Má Marinósyni.
|
|