Málefni útlendinga
Í endurskoðaðri stefnu félagsins Byggjum betra samfélag, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 2007, er lögð áhersla á að Rauði kross Íslands komi að málefnum innflytjenda með virkum hætti. Á fundinum samþykkti stjórn Rauða kross Íslands að veita kr. 45.000.000 til deilda félagsins vegna verkefna á sviði innflytjendamála. Fjárveiting þessi er liður í að auðvelda deildum að efla starf sitt í málaflokknum. Einnig verði lögð áhersla á að innan Rauða krossins verði áhrif fólks af erlendum uppruna efld með því að auka hlut innflytjenda í stjórnum innan félagsins og fjölga þeim í hópi sjálfboðaliða..
Helstu áherslur eru að hvetja deildir félagsins til að þróa verkefni sem lúta að málefnum innflytjenda á öllum aldri, sérstaklega verkefni er stuðla að aukinni samfélagslegri þátttöku þeirra. Deildir eru nú þegar farnar að þróa og reka ný verkefni fyrir og með fólki af erlendum uppruna í því skyni að auðvelda og hraða aðlögun þeirra að íslensku samfélagi.
Verkefnisstjóri í málefnum útlendinga er Atli Viðar Thorstensen
|
|