Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
haiti_6manudir_bordi580.jpg

Jarðskjálfti á Haítí

haiti_kort.jpg

Jarðskjálfti sem mældist 7,3 á richter reið yfir Haítí þann 12. janúar 2010. Upptök hans voru við höfuðborgina Port-au-Prince sem varð verst úti en einnig urðu miklar skemmdir í nágrannasveitarfélögum.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Haítí brugðust undir eins við, og unnu í kapp við tímann við björgun og aðhlynningu slasaðra. Sjálfboðaliðarnir unnu einnig að dreifingu hjálpargagna og aðstoðuðu við umönnun á sjúkrahúsum.

Tíu neyðarteymi Alþjóða Rauða krossins voru tafarlaust send á vettvang. Þar var um að ræða sérfræðinga í dreifingu hjálpargagna, heilsugæslu, uppsetningu neyðarskýla, birgðaflutningum og hreinsun vatns, auk sérhæfðra lækna og hjúkrunarfræðinga.

Alþjóða Rauði krossinn áætlar að aðstoða um 300,000 manns næstu þrjú árin.

Rauði kross Íslands hóf þegar landssöfnun fyrir fórnarlömb jarðskjálftans. Fyrsti íslenski sendifulltrúinn, Hlín Baldvinsdóttir, hélt til Haítí þann 14. janúar, tæpum 2 sólarhringum eftir að skjálftinn reið yfir. Síðan hefur á þriðja tug sendifulltrúa starfað á Haítí.

Sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands pökkuðu einnig 1.000 skyndihjálparpökkum fyrir skyndihjálparteymi sem veittu slösuðum aðstoð á Haítí. Þetta var hluti af nauðsynlegum hjálpargögnum sem Alþjóða Rauða krossinn bað sérstaklega um. Hjálpargögnin voru send með flugvél sem flutti íslensku alþjóðabjörgunarsveitina frá Haítí. Rauði kross Íslands sendi einnig loftkælibúnað fyrir sjúkraskurðstofur, rafstöðvar og rafala fyrir starfsemi tjaldsjúkrahúsa og færanlegra sjúkrastöðva með vélinni. Fjöldi fyrirtækja á Íslandi gaf að hluta þann búnað sem sendur var utan. Var sá stuðningur ómetanlegur og kann Rauði kross Íslands þeim bestu þakkir fyrir. 

Fréttir

haiti_hnappur_styrkjastarf.JPG
haiti_hnappur_vidtol_sendif.jpg
haiti_hnappur_a_vettvangi.jpg
haiti_hnappur_facebook.jpg
haiti_hnappur_myndasafn.jpg
Haiti_thorir.jpg