Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Á fimmta tug sjálfboðaliða Rauða krossins brást við með stuttum fyrirvara þegar leitað var til þeirra um aðstoð við hreinsunarstörf við bæina undir Eyjafjöllum sem urðu hvað verst úti í öskufallinu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Frétt 26.04.2010

Skoða myndir
 


Námskeið fyrir verðandi sendifulltrúa Rauða krossins var haldið dagana 21. til 26. mars 2010.

 

Skoða myndir
 


Sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða kross Íslands brugðust hratt við þegar boð bárust um að eldgos væri hafið í Eyjafjöllum á fyrsta tímanum aðfararnótt sunnudags.

Grein 22.03.2010

Skoða myndir
 


Rauðakrosshúsið hélt upp á eins árs starfsafmæli 05.03.2010. Fjölmörgum gestum, sjálfboðaliðum og öðrum velunnurum var boðið til veglegrar afmælisveislu með tónlist, uppistandi og afmæliskaffi.

Frétt 09.03.2010

Skoða myndir
 


Rauði kross Íslands brást strax við þegar jarðskjálftinn reið yfir Haítí þann 12. janúar. Fjársöfnun fór af stað og Hlín Baldvinsdóttir sendifulltrúi hélt utan tveimur dögum síðar.

Frétt 14.01.2010

Skoða myndir
 


Deildir á höfuðborgarsvæðinu brugðust skjótt við og virkjuðu sjálfboðaliða til að pakka skyndihjálpargögnum fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí.

Frétt 19.01.2010

Skoða myndir
 


Álftanesdeild Rauða krossins og Félag eldri borgara á Álftanesi unnu saman að því að útbúa ungbarnapakka sem sendir voru til Hvíta Rússlands í desember 2009.

Frétt: 30.11.2009

Skoða myndir
 


Liður í Rauðakrossvikunni var að safna saman fólki til að mynda rauðan kross. Þátttakendur fjölmenntu víða um landið í rauðum fötum og stilltu sér upp fyrir framan myndavélarnar og létu ekki leiðindaveður aftra sér. Á höfuðborgarsvæðinu var stærsti rauði krossinn myndaður á túninu fyrir framan Höfða þar sem um 150 manns tóku þátt. Á eftir var öllum boðið í heita drykki og vöfflur í Rauðakrosshúsinu.
 

Skoða myndir
 


Guðjón Magnússon var formaður Rauða kross Íslands í alls tíu ár og sat í stjórn félagsins í 14 ár. Fyrir utan stjórnarsetu í Rauða krossi Íslands sinnti hann fjölda trúnaðarstarfa fyrir félagið. Meðal annars var hann formaður ritnefndar þegar saga félagsins var skráð.

Kveðjugrein á vef 14.10.2009

 

Skoða myndir
 


Skapandi starf með konum af erlendum uppruna er verkefni sem Akranesdeild Rauða krossins hleypti af stokkunum í byrjun árs 2009 og lauk með glæsilegri handavinnusýningu sem haldin var í Bókhlöðunni á Akranesi í júní og júlí.

Frétt 14.09.2009

Skoða myndir
 


Tombólubörn Rauða krossins söfnuðu um 600.000 krónum árið 2008 til hjálpar börnum í forskólum í Chiradzulu og Mwanza héraði í suður-Malaví. Þar hefur Rauði kross Íslands stutt við alnæmisverkefni malavíska Rauða krossins undanfarin ár. Hólmfríður Garðarsdóttir sendifulltrúi starfar í Malaví.

Frétt 10.09.2009

Skoða myndir
 


Aðalfundur Rauða kross Íslands var haldinn í Vík þann 16. maí.

Frétt 16.05.2009

Skoða myndir
 


Rauði kross Íslands sendi gám með notuðum fatnaði og vörum sem skortur var á til malavíska Rauða krossins í nóvember 2008.

Frétt 10.04.2009

Skoða myndir
 


Ungmennahreyfing Rauða krossins (URKÍ) stóð fyrir opnum umræðufundi um málefnið Ungt fólk til áhrifa hjá Rauða krossi Íslands. Þátttakendur tóku virkan þátt í umræðum sem spunnust um málefnið.

Frétt 20.02.2009

Skoða myndir
 


Rauði krossinn stóð fyrir fræðsluherferð fyrir börn, ungmenni og forsjáraðila þeirra til að vinna úr reynslu eftir jarðskjálftanna í vor.

Sjá frétt 30.10.2008

Skoða myndir
 


Landssöfnunin Gengið til góðs fór fram í fimmta sinn þann 4. október 2008.

Skoða myndir
 


Sumarmót Ungmenna var haldið á Löngumýri í Skagafirði 13. - 17. ágúst á Löngumýri í Skagafirði.

Frétt 19.08.2008

 

Skoða myndir
 


Sumarbúðir fyrir fatlaða voru haldnar á  Löngumýri í Skagafirði og í Stykkishólmi. Alls sóttu 40 þátttakendur sumarbúðirnar í sumar.

Frétt 30.07.2008

Skoða myndir
 



Myndir úr árlegri hamfaraskýrslu Alþjóða Rauða krossins

Nánar um hamfaraskýrsluna.

Skoða myndir
 


Nánar um jarðskjálftann



Skoða myndir
 


Aðalfundur Rauða krossins var haldinn í Menntaskólanum í Kópavogi 17. maí.

Frétt

Skoða myndir
 


Felliylurinn Nargis reið yfir Mjanmar föstudaginn 2. maí. Sjá nánar.

Myndirnar eru frá Alþjóða Rauða krossinum og voru teknar fyrstu dagana eftir fellibylinn.

Skoða myndir
 


Margar deildir Rauða krossins tóku þátt í 112 deginum með einum eða öðrum hætti.

Frétt 13.02.2008

Skoða myndir
 


Vígsla heilsugæslustöðvar í Chibucutso, Mósambík þann 30. október 2007. Samvinnuverkefni mósambíska Rauða krossins, Rauða kross Íslands, Þróunarsamvinnustofnun Íslands og heilbrigðisráðuneytis Mósambík.

Grein á vef þann 20.11.2007

Skoða myndir
 


Kynningarátak Rauða krossins á verkefnum innanlands stóð frá 14. október til 20. október. Fjölbreytt dagskrá var um land allt alla vikuna.

Skoða myndir
 


Skagafjarðardeild Rauða kross Íslands fór árið 2006 af stað með verkefni sem kallast „Tómstundahópar fyrir fatlaða".  Þau fóru meðal annars til Spánar í sumar.

Sjá frétt 25.09.2007

Skoða myndir
 


Þór Daníelsson Sendifulltrúi Rauða kross Íslands sem er fulltrúi Alþjóða Rauða krossins Í Mongólíu fór nýverið um landið og heimsótti sjálfboðaliða og starfsmenn Rauða krossins til undirbúnings verkefna- og fjárhagsáætlunar fyrir árin 2008 og 2009. Þór tók myndir á ferð sinni um landið sem lýsa vel ástandinu í landinu sem og starfi Rauða krossins.

Nánar um starfið í Mongólíu með því að smella hér.

Skoða myndir
 


Vikuna 13. - 17. ágúst dvldu félagar úr Víiðsým ferðafélagi athvarfsins Vinjar á Sólheimum í Grímsnes.
Ása Hildur Guðjónsdóttir var með í för og tók þessar myndir.

Skoða myndir
 


Sólveig Þorvaldsdóttir var meðlimu í vettvangteymi til að meta aðstæður í kjölfar flóðanna í Pakistan í júlí.

Frétt frá 09.08.2007
Skoða myndir
 


Alþjóðadagur flóttamanna var haldinn um allan heim í gær 20. júní. Hér á Íslandi var vakin athygli á málefnum flóttamanna með sérstakri dagskrá bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Sjá frétt 21.06.2007
Skoða myndir
 


Aðalfundur Rauða kross Íslands var haldinn á Akureyri 19. maí.

Sjá frétt. 19.05.2007
Sjá frétt 21.05.2007

Skoða myndir
 


Öryggis- og streitustjórnunarnámskeið fyrir sendifulltrúa Rauða krossins var haldið í Bláfjöllum helgina 4.- 6. maí 2007.

Frétt 14. maí 2007
Skoða myndir
 


Á dögunum sótti stjórn Rauða krossins upprifjunarnámskeið í skyndihjálp en útbreiðsla skyndihjálparþekkingar hefur verið eitt af megin verkefnum Rauða kross Íslands frá upphafi. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru þau Ólafur Ingi Grettisson, Snezana Sabo og Vaida Kariwauskaite.
Frétt 07.05.2007

Skoða myndir
 


Þór Daníelsson er sendifulltrúi Rauða krossins í Mongólíu og gegnir starfi yfirmanns Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC).
 Þór sendi grein um Mongólíu og starf Rauða krossins.


Skoða myndir
 


Deildir Rauða krossins á Vesturlandi stóðu fyrir fatasöfnun í mars til að fylla gám sem sendur verður til Gambíu,

Frétt 07.03.2007 

Skoða myndir
 


Skyndihjálparmaður ársins var valinn á 112 deginum þann 11. febrúar Egill Vagn Sigurðsson.

Sjá frétt.

Skoða myndir
 


Flugslysaæfing var haldin á Bíldudal þann 7. október 2006.
Frétt frá æfingunni.


Skoða myndir
 


Rauði krossinn hefur starfrækt sumarbúðir fyrir fatlaða einstaklinga síðustu átta sumur.
Grein um sumarbúðirnar árið 2006.

Skoða myndir
 


Haldið var námskeið fyrir leiðbeinendur í ungmennastarfi í september.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á námskeiðinu.
Sjá frétt.

Skoða myndir
 


Rauði kross Íslands og Ríkissjónvarpið gerðu samning um að vinna efni upp úr fræðsluefninu „Hjálpfús heimsækir leikskólann.” Upptökur fóru fram í september.
Sjá frétt.

Skoða myndir
 


Landssöfnun Rauða krossins „Göngum til góðs” fór fram í fjórða sinn þann 9. september 2006. Myndirnar sýna stemmninguna á einstaklega góðum og vel heppnuðum degi.
Frétt um söfnunardaginn.

Skoða myndir
 


Landssöfnun Rauða krossins „Göngum til góðs” var hleypt af stokkunum á blaðamannafundi sem haldinn var í Kringlunni þann 31. ágúst. Hópur þjóðþekktra manna sýndu á táknrænan hátt stuðning við söfnunina. Sjá frétt

Skoða myndir
 


Landssöfnun Rauða krossins Göngum til góðs verður haldin í fjórða sinn 9. september. Söfnunarfénu verður varið til að hjálpa börnum í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Sjá nánar um alnæmisverkefni.

Myndirnar eru af börnum í Malaví en þar styrkir Rauði kross Íslands verkefni malavíska Rauða krossins. 
Skoða myndir
 


Jarðskjálfti að stærðinni 6,3 stig reið yfir Jövu í Indónesíu þann 27. maí.

Rauði krossinn í Indónesíu hefur veitt tæplega 5.000 manns læknishjálp og dreift hjálpargögnum til yfir 10 þúsund fjölskyldna. Nýjustu upplýsingar gefa til kynna að a.m.k. sex þúsund manns hafi látist og yfir 50 þúsund slasast.

Meðfylgjandi myndir eru frá Alþjóða Rauða krossinum. Þær gefa innsýn í aðstæður og hið mikla hjálparstarf á svæðinu en mikið er enn óunnið. Sjá frétt

Skoða myndir
 


Á uppstigningadag, 25. maí, héldu tæplega 50 krakkar í ungmennastarfi Rauða kross deildanna á höfuðborgarsvæðinu í sameiginlega vorferð.
Sjá frétt.

Skoða myndir
 


Aðalfundur Rauða kross Íslands var haldinn þann 20. maí 2006 á Hótel Loftleiðum.
Frétt af fundinum.

 

Skoða myndir
 


Dagana 25. -26. mars 2006 fór almannavarnaæfingin Bergrisinn fram. Æfingin er lokahnykkurinn í gerð nýrra viðbragðs- og rýmingaráætlana fyrir áhrifasvæði eldgosa, jökulhlaupa og gjóskufalls frá Mýrdals- og Eyjafjallajöklum. Eitt af stærstu verkefnum Bergrisans er rýming íbúðarhúsnæðis á áhrifasvæði Kötlu en einnig er látið reyna á alla þætti áætlana sem lúta að viðvörunum til íbúa, rýmingaráætlun, umferðar- og fjarskiptaskipulags, boðunaráætlun, samhæfingu o.fl.
Skoða myndir
 


Áslaug Arnoldsdóttir hjúkrunarfræðingur kom heim frá Úganda fyrir skömmu. Þar starfaði hún sem sendifulltrúi í eitt ár við heilsugæslu og í flóttamannabúðum á vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC). Áslaug sinnti einnig þeim sem hafa særst í stríðsátökum og við sjúkraflutning þeirra.

Hluti af starfi Áslaugar fólst í fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks og almennings um farsóttir.

Skoða myndir
 


Laugardaginn 19. nóvember 2005 var haldin umfangsmikil ferjuslysaæfing á Seyðisfirði. Æft var eftir séráætlun vegna ferjuslyss á Seyðisfirði. Æfð var samvinna viðbragðsaðila á vettvangi, fulltrúa í aðgerðastjórn í héraði og áhöfn samhæfingarstöðvarinnar í Reykjavík. Sjá frétt.
Skoða myndir
 


Sigurður Ingi Pálsson kerfisfræðingur fór sem sendifulltrúi til Banda Aech í Indónesíu í júlí 2005 þar sem hann hefur umsjón með tölvu- og fjarskiptamálum.

Á miðjum samningi, október 2005, fór hann í stutta ferð til Suður-Súdan þar sem hann tók þátt í FACT teymi (field assessment and coordination team) sem hafði það hlutverk að meta aðstæður á vettvangi og skipuleggja fyrstu verkefni Alþjóðasambandsins á svæðinu.

Sigðurður sendi myndir frá Suður-Súdan.

Skoða myndir
 


Þorkell Þorkelsson ljósmyndari var á ferð í Aceh héraði í Indónesíu í september sl. Með honum var Maude Fronberg upplýsingafulltrúi Alþjóða Rauða krossins í SA-Asíu. Maude er höfundur meðfylgjandi greinar. Skoða myndir
 


Jón Hafsteinsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður fór til Pakistan í lok október þar sem hann starfar á vegum Alþjóðaráðsins sem sjúkraflutningamaður.

Jón sendi myndbrot af störfum sínum.

Skoða myndir
 


Sólveig Ólafsdóttir fjölmiðlafræðingur er sendifulltrúi í Pakistan. Hún vinnur sem upplýsingafulltrúi Alþjóða Rauða krossins. Hún sendi myndir frá Balakot og greinarnar: Útbreiðsla sjúkdóma ógnar fórnarlömbum jarðskjálftans, Pakistan - lífsauðs gætt í grjótinu og Rauði krossinn treystir á konur í heilbrigðisgeiranum til að bæta heilbrigðiskerfið í Pakistan
Skoða myndir
 


Sjálfboðaliðar Rauða kross deildarinnar í Hindane í Mósambík vígðu nýtt húsnæði í október 2005. Fulltrúar Rauða kross Íslands voru á staðnum.
Myndirnar tók Elín R. Sigurðardóttir.

Sjá frétt af atburðinum.

Skoða myndir
 


Karl Sæberg Júlísson, afbrotafræðingur, var í Níger í sex vikur frá 14. ágúst 2005. Karl vann sem öryggisfulltrúi fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Níger og nágrannalöndunum Burkina Faso, Mauritaníu og Mali. Starf Karls fólst í því að koma á öryggiskerfi fyrir sendifulltrúa á vettvangi. 
Sjá grein um starfið í Níger.
Skoða myndir
 



Rauði krossinn og aðrar hjálparstofnanir hafa brugðist við hamförunum með öflugri aðstoð, en vegna hinnar gífurlegu eyðileggingar og erfiðra kringumstæðna erfitt að koma hjálpargögnum til nauðstaddra. Sjá nánar um hjálparstarfið í Pakistan.

Skoða myndir
 


?Byggjum betra samfélag" var kynnt á Menningarnótt Reykjavíkurborgar 2005. Þórir Guðmundsson tók myndir af atburðinum.

Hér er hægt að lesa frétt frá deginum.

Skoða myndir
 


Rauði krossinn hélt sérsniðið námskeið fyrir kennara Grundaskóla á Akranesi. Elís Þór Sigurðsson og Borghildur Jónsdóttir tóku meðfylgjandi myndir.

Sjá fréttatilkynningu um námskeiðið.

Skoða myndir
 


Rauði kross Íslands hefur á undanförnum árum haldið umhverfisnámskeið í Þórsmörk fyrir ungmenni á aldrinum 12 - 14 ára. Þátttakendur vinna við landgræðslu og skógrækt, fræðast um gróðurfar og umhverfi og stunda gönguferðir og náttúruskoðun samhliða því. Einnig er farið í grunnatriði skyndihjálpar, leiki og fjallað um ólíka menningarheima. Skoða myndir
 


Hamfaraflóð á Sri Lanka urðu rúmlega 30.000 manns að bana 26. desember 2004. Hjálparstarf Rauða krossins fór í gang samdægurs. Þessar myndir voru teknar í ferð Þóris Guðmundssonar um hamfarasvæðin um miðjan janúar 2005.

Hér eru tvær greinar sem Þórir skrifaði um ferðina:
Í vöruskemmu til Sri Lanka,  Harmur og hjálparstarf í Hambantota
 
Skoða myndir
 


Landsöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri" fór fram dagana 15. og 16. janúar 2005.
Sjá fréttatilkynningu eftir söfnunina.
Skoða myndir
 


Myndir frá flóðunum í Asíu í desember 2004. Myndirnar eru frá Reuters.
Sjá fréttatilkynningu.

Skoða myndir
 


Þórir Guðmundsson fór til Bam í desember 2004.
Sjá fréttir af ferðinni.

 

Skoða myndir
 


Rauði kross Íslands stóð fyrir fatasöfnun í maí 2004 þar sem óskað var eftir hlýjum fatnaði á konur og börn í Afganistan. Sjá frétt af afhendingunni.

Skoða myndir
 


Rauði krossinn tók þátt í flugslysaæfingu sem haldin var á Keflavíkurflugvelli þann 6. nóvember 2004, sjá frétt af æfingunni. Skoða myndir
 


Öryggisnámskeið er liður í því að búa sendifulltrúa Rauða kross Íslands undir störf á hættustöðum. Auk þess fara sumir á frekari námskeið hjá Alþjóða Rauða krossinum. Á hverju ári sendir félagið milli 15 og 25 manns til starfa erlendis, suma þeirra á átakasvæði.
Sjá frétt af æfingunni.
Skoða myndir
 


„Göngum til góðs"
Landssöfnun Rauða krossins til hjálpar börnum á stríðssvæðum þann 2. október 2004.

Skoða myndir
 



Súdan
Nýjar myndir sem landsfélög Rauða krossins í Noregi, Þýskalandi og Belgíu tóku á svæðum Darfur í Súdan og yfir landmærin í Tshad.

Skoða myndir