Fjölbreytt sjálfboðastarf Rauða krossins
Deildir Rauða krossins um allt land halda úti öflugu mannúðarstarfi sem borið er uppi af um 2000 sjálfboðaliðum félagsins. Sjálfboðaliðar á öllum aldri starfa við mismunandi verkefni sem öll hafa það sameiginlegt að láta í té þjónustu sem er íslensku samfélagi afar dýrmæt. Nú á tímum efnahagsþrenginga verða sum hefðbundin verkefni Rauða krossins enn umfangsmeiri en á sama tíma verða ný verkefni til, bæði vegna fleiri skjólstæðinga og sjálfboðaliða. Verkefnin eru fjölbreytt og ættu allir að geta fundið sér farveg í sjálfboðnu starfi félagsins. Skráning fer fram hér.
Sjálfboðaliðar í heimsóknaþjónustu styðja einstaklinga sem búa við einsemd og félagslega einangrun. Í Hjálparsíma Rauða krossins svara sjálfboðaliðar símtölum frá fólki í erfiðleikum. Í Rauða kross búðunum starfa sjálfboðaliðar við að selja notuð föt og einnig er hægt að bjóða fram þjónustu sína við að flokka föt í flokkunarmiðstöðvum félagsins. Í athvörfum Rauða krossins fyrir geðfatlaða er margvíslegur stuðningur sem sjálfboðaliðar taka virkan þátt í. Löng hefð er fyrir sjálfboðastarfi við rekstur sölubúða og bókasafnsþjónustu fyrir sjúklinga á Landsspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi og við Hringbraut. Sjálfboðaliðar í neyðarvörnum sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Félagsstarf með ungu fólki felst annars vegar í hópastarfi og hins vegar í stuðningi við börn og unglinga.
Meira um verkefnin hér:
|
|