virða grundvallarmarkmið Alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans ásamt leiðarljósi Rauða kross Íslands og vinna hvoru tveggja brautargengi
koma fram af heiðarleika og virðingu gagnvart þeim sem starfað er fyrir eða með óháð þjóðerni, uppruna, kyni, aldri, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum eða þjóðfélagsstöðu
gæta fyllsta trúnaðar um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og ber að fara með sem trúnaðarmál
ekki sýna áreitni eða misbeita valdi, hvorki kynferðislega né á annan hátt í samskiptum við einstaklinga sem þeir starfa fyrir eða með
gæta þess, við öflun fjármuna, að hafa sjálfstæði félagsins í heiðri
einungis nota fjármuni og eigur Rauða kross Íslands í þágu hans og þeirra verkefna sem samræmast stefnu félagsins og skuldbinda hann ekki umfram samþykktir
forðast að taka að sér verkefni sem ganga gegn markmiðum félagsins
gæta þess að koma ekki fram fyrir hönd Rauða krossins í samskiptum við félög, fyrirtæki og stofnanir sem þeir eru í forsvari fyrir, sérstaklega þegar um viðskiptalega hagsmuni gæti verið að ræða
ekki taka þátt í ráðstöfun fjármuna eða eigna félagsins til verkefna þar sem þeir eða einstaklingar nánir þeim eiga hagsmuna að gæta