Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Félagsvinir atvinnuleitenda 22.01.2010
Fyrsti hópur sjálfboðaliða á 28 stunda undirbúningsnámskeiði ásamt leiðbeinendum.

Rauði kross Íslands er að leggja af stað með félagsvinaverkefni fyrir atvinnuleitendur í samstarfi við; Eflingu, Iðuna fræðslusetur, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fræðsluskrifstofu rafiðnar, Mími símenntun og þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið hefur það markmið að styrkja og virkja atvinnuleitendur í starfsleit sinni og byggir á jafningjafræðslu. Undirbúningsvinna hefur gengið framar björtustu vonum og fer fyrsti hópur félagsvina af stað 15. febrúar næstkomandi og stendur til 15. maí.

Um verkefnið
Félagsvinaverkefni fyrir atvinnuleitendur byggir á sambandi tveggja einstaklinga þar sem annar leiðir sambandið (sjálfboðaliði) en hinn þiggur leiðsögn (atvinnuleitandi), þeir eru félagsvinir hvors annars. Sá sem leiðir sambandið hefur hlotið til þess þjálfun hjá samstarfsaðilum verkefnisins og hefur einnig sjálfur reynslu af atvinnuleit. Sambandið tekur mið af óskum og þörfum atvinnuleitandans með það að markmiði að sambandið opni dyr að helstu úrræðum sem geta gagnast honum í atvinnuleitinni. Mikilvægt er að félagsvinir skoði sínar eigin væntingar og markmið í sambandinu og komi því til skila til hins aðilans. Þannig getur myndast farsælt og árangursríkt félagsvinasamband. Hvert samband varir í þrjá mánuði og áætlað er að félagsvinir hittist einu sinni í viku. Félagsvinasamband byggir á jafnréttisgrundvelli, gagnkvæmri virðingu og tillitssemi.

Fyrsti hópur sjálfboðaliða
Ákveðið var að sjálfboðaliðar þessa verkefnis yrðu einstaklingar sem væru atvinnulausir en virkir í atvinnuleit og sjálfboðaliðastarfi. Áhugasamir voru boðaðir í viðtöl til verkefnisstjóra þar sem meðal annars var farið yfir lífsögu þeirra, þeir spurðir um líðan og eigin virkni ásamt ástæðunni fyrir atvinnuleitinni. 17 einstaklingar voru teknir inn í verkefnið í kjölfarið og sátu 28 stunda námskeið sem fór fram dagana 11. – 20. janúar 2010. Markmið námskeiðsins var að þátttakendur fræddust um ábyrgðina og skyldurnar sem fylgja því að vera félagsvinur, þjálfun til þess að leiðbeina öðrum atvinnuleitendum í starfsleit sinni með því að fá hagnýtar upplýsingar um réttindi, skyldur og hvaða úrræði eru í boði fyrir atvinnuleitendur, að efla sjálfstraust og leiðtogahæfileika þátttakenda og að öðlast ferska sýn á eigin getu og hæfileika sem styrkir þá í atvinnuleitinni.

Að fá félagsvin
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í meira en sex mánuði og hafa ekki verið virkir í félagsstörfum eða sjálfboðnu starfi hafa kost á því að fá félagsvin. Mikilvægt er að þeir hafi vilja til þess að taka ábyrgð og stjórn á eigin lífi og aðstæðum ásamt því að vera opnir fyrir nýjum möguleikum og tækifærum. Í upphafi félagsvinasambands skoða atvinnuleitendur þarfir sínar í víðu samhengi, ræða þær við sinn félagsvin og setja sér markmið með sambandinu. Til þess að ná markmiðum sínum búa þeir til vinnuáætlun með tímaramma sem stuðst er við á meðan sambandið varir. Félagsvinir leggja vinnuáætlun sína fyrir verkefnisstjóra á þriðja fundi sínum sem skoðar árangurinn á miðju tímabilinu og í lok þess. 

Skráning í verkefnið
Líkt og fram hefur komið hafa þegar verið teknir inn sjálfboðaliðar í verkefnið og þeir lokið undirbúningsnámskeiði. Þeir atvinnuleitendur sem hafa áhuga á því að fá félagsvin geta óskað eftir viðtali hjá verkefnisstjóra, Fjólu Einarsdóttur, með því að fylla út umsókn hér að neðan eða fyllt út umsókn í Rauðakrosshúsinu sem liggja í afgreiðslunni.

Undirbúningsnámskeið fyrir þá sem óska eftir félagsvini verður haldið í Rauðakrosshúsinu þann 8. febrúar næstkomandi frá kl. 10:00-14:00.

Skráning fyrir þá sem óska eftir félagsvini
 

Til baka...