Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Fataúthlutanir og fatabúðir

Vinsamlega athugið að fataúthlutun Rauða krossins verður lokuð frá 14. júlí til 11. ágúst.

Fataúthlutun á höfuðborgarsvæðinu fer fram að Laugavegi 116 í Reykjavík á miðvikudögum milli kl. 10 og 14. Gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin. Sjá úthlutunarreglur neðst á síðunni.

Suðurnesjadeild, Akureyrardeild og Skagafjarðardeild úthluta einnig fatnaði. Þá útvega aðrar deildir fatnað ef til þeirra er leitað. 

Úthlutunarreglur
Skilríki Allir þurfa að framvísa skilríkjum til að gera grein fyrir sér.
Skráning Skráð verður nafn og kennitala. Einnig hversu mörg börn viðkomandi er með á sínu framfæri.
Fatnaður Hver einstaklingur getur fengið allt að tvo poka af fatnaði hverju sinni. Fatasöfnunin lætur í té pokana.
Hve oft Sérhver getur fengið úthlutað fjórum sinnum á ári. Að minnsta kosti tveir mánuðir þurfa að líða á milli úthlutana.
Komi upp sérstök tilvik sem krefjast úrlausnar umfram áðurtalda aðstoð skal leita til Rauða kross deildar í viðkomandi sveitarfélagi.
 


















Verslanir Rauða krossins

Rauði krossinn rekur verslanir þar sem seldur er notaður fatnaður á hagstæðu verði.

Laugavegi 12 Reykjavík, sími 551 1414
Laugavegi 116 Reykjavík, sími  551 3443
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18.

Verslunarmiðstöðin Mjódd Reykjavík sími 566 5080
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16.
 
Strandgötu 24 Hafnarfirði, sími 565 0030
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 12-18, lokað laugardaga.

Rauða kross búðin Fjarðarbraut 48, Stöðvarfirði. Opið mánudaga frá kl. 19:30-22, laugardaga frá kl. 14-16.

Rauða kross búðin Nesvegi 5, Grundarfirði. Opin fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá kl. 15-18. 

Nánari upplýsingar í Fatasöfnun Rauða krossins að Skútuvogi 1 Reykjavík, sími 587 0900, fataflokkun@redcross.is eða á landsskrifstofu Rauða krossins sími 570 4000.

Barnafataskiptimarkaður í Rauðakrosshúsinu

Rauði krossinn stendur fyrir skiptimarkaði með barnaföt í Rauðakrosshúsinu Borgartúni 25 alla þriðjudaga klukkan 16:00 – 19:00.

Skiptifatamarkaðurinn virkar þannig að fólk kemur með barnaföt sem eru orðin of lítil á þeirra barn/börn og fá skiptimiða fyrir hverja flík sem gildir sem gjaldmiðill á markaðinum. Skiptimiðarnir eru litaðir eftir verðmæti fatnaðar, sá sem kemur með: Útigalla eða spariföt fær gulan miða, húfur, trefla eða vettlinga fær bláan miða, skó eða stígvél fær grænan miða og hvítur miði fæst fyrir annan fatnað.