Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Rausnarleg gjöf 04.02.2010
Skyndihjálparleiðbeinendur Grindavíkurdeildar - Laufey og Rósa.

Grindavíkurdeild Rauða krossins fékk á dögunum endurlífgunardúkku að gjöf frá örlátum stuðningsaðila sem ekki vill láta nafns síns getið.

Mikið átak hefur átt sér stað í neyðarvörnum Grindavíkurdeildar síðastliðið ár og þáttur í því hefur meðal annars verið að þjálfa leiðbeinendur í skyndihjálp og sálrænum stuðningi. Deildin hefur nú á sínum snærum tvo leiðbeinendur í skyndihjálp og þrjá leiðbeinendur í sálrænum stuðningi sem fyrirtæki og stofnanir geta fengið til að halda námskeið fyrir starfsfólk sitt.

Til að leiðbeinandi geti komið fræðslu sinni og kennslu sem best til skila þá skiptir máli að hafa þau tæki sem til þarf. Endurlífgunardúkka er eitt mikilvægasta tækið í skyndihjálparkennslu og var orðin veruleg þörf á að endurnýja hana hjá deildinni. Það er því óhætt að segja að hlaupið hafi á snærið hjá Grindavíkurdeild þegar henni barst þessi góða gjöf en fyrir átti deildin dúkkubarn svo nú má segja að skyndihjálparleiðbeinendurnir séu færir í flestan sjó.

 
Grindavíkurdeild þakkar hinum örláta stuðningsaðila kærlega fyrir góða og þarfa gjöf.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook