Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Sendifulltrúanámskeið Rauða krossins 01.02.2010

Hefur þú áhuga á að starfa við hjálparstörf erlendis?

Rauði kross Íslands auglýsir eftir umsóknum um þátttöku í sendifulltrúanámskeiði félagsins. Námskeiðið er tvíþætt og fer fyrri hluti þess fram á netinu en seinni hlutinn verður haldinn í Munaðarnesi 21. – 26. mars næstkomandi. Alls verða 25 umsækjendur valdir inn á námskeiðið en þátttaka í því er forsenda þess að geta starfað sem sendifulltrúi Rauða kross Íslands á alþjóðavettvangi en veitir þó ekki tryggingu fyrir slíku starfi.

Þátttökuskilyrði eru m.a. fagmenntun og minnst þriggja til fimm ára starfsreynsla í viðkomandi fagi eftir nám. Mjög góðrar enskukunnáttu í töluðu og skrifuðu máli er krafist en mikill kostur er ef umsækjandi hefur góð tök á frönsku og /eða arabísku og /eða spænsku. 

Rauði kross Íslands leitar sérstaklega að sérfræðingum á sviði heilbrigðis og verkfræði sem gætu starfað með Alþjóða Rauða krossinum í kjölfar náttúruhamfara og/eða á átakasvæðum en einnig frönskumælandi fólki með háskólamenntun á sviði lögfræði eða mannréttinda til að starfa að vernd almennings á átakasvæðum. Reynsla af skýrsluskrifum, verkefna- og fjármálastjórnun er mikill kostur fyrir öll ofangreind störf sem og starfsreynsla á alþjóðavettvangi.

Umsóknir berist með tölvupósti til Kristínar Ólafsdóttur verkefnisstjóra á alþjóðasviði Rauða kross Íslands (kristin@redcross.is) fyrir 10. febrúar næstkomandi. Umsækjendur er vinsamlegast beðnir um að nota staðlað umsóknareyðublað. Nánari upplýsingar um námskeiðið og þátttökuskilyrði. Öllum umsóknum verður svarað.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook