 |
| Alþjóðlegu foreldrarnir á samverunni í síðustu viku. |
Góður hópur alþjóðlegra foreldra hittist í sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar alla fimmtudaga. Hópurinn samanstendur af foreldrum ólíkra landa sem eru heima með lítil börn sín. Auk Íslendinga eru foreldrar frá til dæmis Póllandi, Suður-Afríku, Japan og Ghana. Reglulega er boðið upp á fræðslu eða kynningar sem flestar tengjast börnum. Leikföng eru á staðnum fyrir börnin og léttar veitingar eru í boði. Þátttaka er ókeypis. Allir eru velkomnir, innfæddir og innflytjendur, hvort sem þeir tala enga eða einhverja íslensku.
Verkefnið fór af stað hjá deildinni haustið 2007 og er markmið þess að rjúfa félagslega einangrun foreldra sem eru heima með lítil börn sín. Síðan verkefnið hófst hafa þátttakendur komið frá alls konar löndum og fimm heimsálfum. Auk ofangreindra landa hafa þátttakendurnir komið frá Svíþjóð, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Guyana, Venesúela, Litháen, Lettlandi, Ítalíu, Rússlandi, Malasíu, Spáni, Kanada, Sri Lanka, Ástralíu, Noregi, Frakklandi, Eistlandi, Mexíkó, Moldovu, Tævan, Bretlandi, Perú og Írak.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu geta haft samband við deildina í síma 554 6626 eða með tölvupósti á kopavogur@redcross.is.