 |
| Héðinn styllti sér upp með henni Heiðu. Í bakgrunni sést í sokka sem Héðinn hefur prjónað. |
Hann Héðinn Höskuldsson er einn af mörgum sem leggja Rauða krossinum lið. Þó er það með nokkuð sértökum hætti fyrir mann á níræðisaldri, en hann er nefnilega vel liðtækur með prjónana og prjónar af miklum myndarskap.
Að sögn þá lærði hann að prjóna á unglingsárum og hefur haldið því áfram til þessa dags. Hann hefur m.a. prjónað bæði á börnin og barnabörnin og nú er það líka Akureyrardeild Rauða krossins sem nýtur þessa hæfileika Héðins.
Margar deildir Rauða krossins starfa að verkefninu Föt sem framlag. Þar koma sjálfboðaliðar á öllum aldri saman og hanna, prjóna og sauma fatnað. Afurðirnar eru seldar á mörkuðum deilda eða í Rauðakrossbúðunum.
Alltaf er þörf fyrir hvers kyns prjónavörur í verslunum Rauða krossins. Ágóðinn af sölunni skilar sér í Hjálparsjóð. Fjármunir úr Hjálparsjóðnum nýttast til þróunar- og neyðaraðstoðar erlendis. Einnig eru útbúnir ungbarnapakkar sem sendir eru til landa þar sem neyð ríkir.