 |
| Hlín Baldvinsdóttir á flugvellinum við Port-au-Prince. |
HLÍN Baldvinsdóttir, sendifulltrúi Rauða kross Íslands, fór til Haítí sl. sunnudag og starfar hún nú sem fjármálastjóri í sérfræðingateymi Alþjóða Rauða krossins í landinu. Hún segir aðstæður vissulega mjög erfiðar en starfið sé á réttri leið og þegar hafi náðst mjög góður árangur í ýmsum efnum. Greinin birtist í Morgunblaðinu þann 23. janúar 2010.
„Ég hef það ágætt sjálf, þetta er ekki verra en að vera í útilegu í eina viku,“ sagði Hlín í símaviðtali við Morgunblaðið í gær. „Fyrstu nóttina þurfti ég að sofa undir beru lofti með moskítónet yfir mér en nú er ég búin að fá tjald. Þetta er allt mjög frumstætt en við höfum aðgang að vatni, höfum skrifstofuaðstöðu og búið er að setja upp nettengingu. Við vorum ekki nema um 50 manns fyrstu dagana en erum núna um 200. En nú er búið að finna annan stað handa starfsmönnum Alþjóða Rauða krossins, þar verða settar upp tjaldbúðir öll aðstaðan mun batna mjög mikið.“
Hún segir hjálparstarfið hafa gengið hægt til að byrja með vegna þess að höfnin hafi eyðilagst og alþjóðaflugvöllurinn við höfuðborgina, Port-au-Prince, hafi ekki annað nema lítilli umferð.
„En miðað við aðstæður er búið að ná frábærum árangri. Við höfum nú dreift gögnum í tvo daga, fólk hefur tekið okkur mjög vel og sýnt samvinnuvilja. Það eru 508 bráðabirgðabúðir víða um Port-au-Prince og margir hafast við í heimagerðum tjöldum sem ekki eru meira en ábreiða. Það er geysilega mikið vandamál að tryggja nægilegt húsnæði og öryggi þar sem fólk getur sofið, þvegið sér og eldað. Hér er verið að tala um yfir 500.000 manns. Hreint drykkjarvatn, teppi, tjöld og eldunartæki eru efst á listanum yfir það sem enn skortir og svo vantar heppilegt byggingarefni svo að fólk geti reist sér skýli.“
Rólegt en auðvitað einhverjar uppákomur
- Er öryggisástandið orðið þokkalegt í borginni?
„Ég upplifi umhverfið sem rólegt, auðvitað eru hér og þar smá uppákomur - t.d. var hópur fólks við flugvöllinn sem vildi komast úr landi og þar þurfti lögregla að nota táragas. Á einstaka stöðum hafa verið stimpingar þar sem verið er að dreifa nauðsynjum en almennt eru öryggismálin í góðum höndum. Það er hins vegar geysileg umferðarteppa á daginn, langar raðir við bensínstöðvar, en fólk yfirleitt þolinmótt.“
Hún segir samstarf hinna mörgu þjóða sem koma að hjálparstarfinu ganga mjög vel. „Hér hjá okkur eru teymi frá 25 landsfélögum í Asíu, Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku og Ástralíu og finnst mér frábært að sjá hvernig Rauða kross-teymin koma sér saman um að skipuleggja starfið. Allir eru mjög áhugasamir um að vinna saman og skipta með sér verkum,“ sagði Hlín Baldvinsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins á Haítí.
Í HNOTSKURN
- Aðstæður voru mjög slæmar á Haítí þegar fyrir jarðskjálftann, pólitísk upplausn og öryggisástand mjög ótryggt. Landið er eitt af þeim fátækustu í heimi.
- Um níu milljónir manna búa í landinu, þar af þrjár í höfuðborginni, Port-au-Prince. Flestir íbúarnir eru blökkumenn og tala franska mállýsku (kreólsku).