|
|
Handavinnuhópur Hveragerðisdeildar
19.12.2007
Hjá Hveragerðisdeild tók á haustdögum til starfa prjóna- og saumahópur í húsnæði deildarinnar. Hópurinn hittist einu sinni í viku, á fimmtudögum, klukkan 13:00 – 16:00. Strax í fyrstu viku komu nokkrar konur saman til að sauma og prjóna til góðra verka og um leið og þetta spurðist út fjölgaði í hópnum. Verkefnin eru tvíþætt. Annars vegar eru framleiddar prjónavörur sem seldar eru til styrktar hjálparstarfi. Hinsvegar eru útbúnir fatapakkar fyrir ungabörn 0-1 árs samkvæmt fyrirfram ákveðinni uppskrift verkefnisins „Föt sem framlag”. Ungbarnapakkarnir verða sendir til vinadeildar Rauða krossins í Lower River í Gambíu, þar sem þeim verður dreift í samstarfi við heilsugæsluna til ungra fátækra mæðra.
Mikil ánægja er með þetta verkefni hjá deildinni. Að sögn umsjónarkonu verkefnisins, Soffíu Pálmadóttur, hefur þetta farið langt fram úr björtustu vonum og gaman hve vel gengur.
|
|