Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Íslenskir sérfræðingar þjálfa sjúkraflutningamenn í Palestínu 11.09.2009
Lárus Petersen að leiðbeina palestínskum sjúkraflutningamönnum.

Tólf palestínskir sjúkraflutningamenn hafa nú lokið námskeiði í endurlífgunaraðferðum sem haldið var á vegum Rauða kross Íslands í höfuðborginn Ramallah á Vesturbakkanum. Seinna námskeiðið hefst á morgun og þar munu 13 sjúkraflutningamenn Rauða hálfmánans í Palestínu til viðbótar hljóta sömu þjálfun.

Námskeiðin eru eitt af þeim verkefnum sem Rauði kross Íslands stendur fyrir til aðstoðar palestínska Rauða hálfmánanum. Hildigunnur Svavarsdóttir skólastjóri Sjúkraflutningaskólans fer fyrir hópnum. Auk hennar eru tveir læknar, þeir Felix Valsson og Freddy Lippert, sem er frá Danmörku, og tveir sjúkraflutningamenn, þeir Lárus Petersen og Stefnir Snorrason sem sinna kennslunni. Um er að ræða tvö 20 tíma námskeið sem eru samkvæmt stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins.

„Þetta hefur gengið ótrúlega vel þrátt fyrir þær ólíku aðstæður sem við vinnum við,” segir Hildigunnur. „Sjúkraflutningamenn hér hafa ekki fengið mikla þjálfun í meðhöndlun lífshættulegra sjúkdóma eins og hjartasjúkdóma heldur meira sinnt aðstoð vegna áverka. Með þessum námskeiðum sjá þeir tækifæri til að byggja upp þjónustu sem hefur hreinlega ekki verið til staðar en mikil þörf er fyrir.”

Palestínski Rauði hálfmáninn heldur úti sjúkraflutningum í andrúmslofti stöðugrar spennu og yfirvofandi hernaðarátaka. Þegar Ísraelar gerðu árásir á Gaza um áramótin fluttu sjúkraflutningamenn Rauða hálfmánans stríðssærða um götur strandlengjunnar og voru við það í stöðugri lífshættu.

Hildigunnur segir að þegar hafi fimm sjúkraflutningamenn úr hópnum verið valdir til frekari þjálfunar til að öðlast leiðbeinendaréttindi, þannig að palestínski Rauði hálfmáninn geti sjálfur staðið fyrir fleiri slíkum námskeiðum. Hún vonast til að fleiri leiðbeinendaefni verði valin í seinna námskeiðinu.

Rauði kross Íslands hefur starfað með palestínska Rauða hálfmánanum að margvíslegum verkefnum. Þannig njóta um 37 þúsund skólabörn sálræns stuðnings samkvæmt verkefni sem Rauða kross félögin á Íslandi, Ítalíu, í Danmörku og Frakklandi standa að. Önnur verkefni Rauða kross Íslands ná til sálræns stuðnings á Gaza og starfs með ungmennum í Betlehem.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook