Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Hver er munurinn á flóttamanni og hælisleitanda?

Hælisleitandi/flóttamaður

Flóttamaður, í skilningi Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), er sá sem er utan við heimaland sitt og þarfnast verndar og á skilið vernd í öðru ríki vegna þess að hann hefur ástæðuríkan ótta að verða fyrir (eða hefur orðið fyrir) ofsóknum í heimaríki sínu og að hans eigin ríkisstjórn annað hvort getur ekki eða vill ekki veita honum vernd fyrir ofsóknunum. Sá sem talinn er uppfylla þessi skilyrði á rétt á að fá stöðu flóttamanns ef viðkomandi ríki er aðili að Flóttamannasamningnum.

Þegar að einstaklingur sækir um hæli utan eigin ríkis er hann first skilgreindur sem hælisleitandi af stjórnvöldum í viðkomandi landi. Með umsókn um hæli er viðkomandi að biðja um viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður. Ef stjórnvöld fallast á réttmæti umsóknar um hæli fær viðkomandi viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður í skilningi Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna frá 1951 og viðauka hans frá 1967. Við það öðlast hann ákveðinn réttindi sem tilgreind eru í Flóttamannasamningnum.

Synji stjórnvöld hins vegar umsókn um hæli, þá geta þau annað hvort veitt hælisleitanda dvalarleyfi af mannúðarástæðum, sent viðkomandi úr landi eða veitt bráðabirgðadvalarleyfi vegna þess að ekki er hægt að senda viðkomandi úr landi. Synjun um hæli þarf ekki að þýða að hælisleitandi sé ekki flóttamaður heldur aðeins að ekki hefur verið fallist á beiðni um viðurkenningu. Hælisleitandi getur því verið „óviðurkenndur“ flóttamaður.

Sumir einstaklingar sem neyðast til að flýja heimili sitt og heimaland fá stundum tækifæri til að hefja nýtt líf í nýju landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna óskar þá eftir því að þjóðir heims taki á móti viðkomandi einstaklingum sem eru sannarlega taldir vera flóttamenn. Ríkisstjórn Íslands hefur til að mynda flest undanfarin ár boðið hingað flóttamönnum á þessum forsendum og veitt þeim stöðu flóttamanns. Árið 2003 komu til að mynda 24 manna hópur frá fyrrverandi Júgóslavíu til Íslands í boði stjórnvalda. Slíkir hópar þurfa ekki að ganga í gegnum sama ferli og hælisleitendur heldur er þeim veitt viðurkenning á stöðu þeirra sem flóttamenn og njóta mun ríkari réttinda heldur en hælisleitendur og þeir sem fá hæli af mannúðarástæðum.