Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Ungmenni safna styrktarfélögum í sumar! 09.06.2010
Ungmennin sem sjá má á götum bæjarins næstu vikurnar.

Rauði krossinn hefur ráðið hóp ungmenna í sumar til að fjölga styrktarfélögum. Vonast Rauði krossinn til að sem flestir sjái sér fært að veita mánaðarlegan styrk til barna í Malaví. Að sama skapi er þetta tækifæri fyrir ungmennin að skapa sér tekjur yfir sumarið.

Hægt er að velja um þrjár upphæðir: 700 kr. sem greiða fyrir framfærslu eins barns í einn mánuð, svo 1.400 kr. ef viðkomandi vill styðja 2 börn, og loks 2.100 kr. til að styrkja 3 börn í heilan mánuð. Aðrar upphæðir eru einnig vel þegnar.

Framlögin renna  til framfærslu 4.000 barna sem sækja leikskóla Rauða krossins og eins til að styrkja eldri börn til náms. Öll eru börnin munaðarlaus eða búa við mjög erfiðar aðstæður. Yngstu börnin hafa athvarf í 10 leikskólum sem Rauði krossinn rekur þar sem þau fá daglega heita máltíð - sem oft á tíðum er eina máltíð þeirra yfir daginn. Rauði krossinn borgar svo skólagjöld og námsefni fyrir eldri börn sem annars myndu ekki eiga kost á að sækja skóla.

Starf Rauða kross Íslands í Malaví á síðasta ári:

  • Um 800 börn sóttu leikskólana í Mwanza og Chiradzulu og fengu þar mat, kennslu og umönnun.
  • Alls nutu um 3.600 börn í Mwanza og Chiradzulu stuðnings Rauða krossins er varðar skólagöngu, matvæli, fatnað og félagslegan stuðning. Voru það nokkru færri en á fyrra ári og skýrist af erfiðleikum við að útvega nægilegt fjármagn til starfsins.
  • Krakkar á Íslandi söfnuðu nærri einni milljón króna sem varið var til kaupa á útileiktækjum handa malavísku börnum.

Nánar um starf Rauða krsoss Íslands í Malaví hér.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook